Signý Þórhallsdóttir er hönnuðurinn á bak við Morra Reykjavík
Hvar er vinnustofa/studióið þitt staðsett: Kænuvogi í Reykjavík
Hvar lærðir þú: Listaháskóla Íslands
Hugmyndafræðin/innblástur á bak við þína hönnun:
„Morra leggur áherslu á fágaðar flíkur og fylgihluti úr vönduðum, náttúrulegum efnum. Ég vinn mikið með prent sem skírskota gjarnan í íslenska náttúru og menningu.“
Séreinkenni íslenskrar hönnunar:
„Hún er kannski sérstæð á þann hátt að saga hönnunar og framleiðslu á Íslandi er styttri og gloppóttari en hjá til dæmis nágrannaþjóðum okkar. Hún byggist þannig upp við ákveðið frelsi, laus við fyrirframgefnar hugmyndir eða langar hefðir. Það sést á því hve margt ólíkt er í gangi. Hönnuðir hér líta margir til umhverfisins og náttúrunnar, birtunnar, efniviðarins eða menningunnar frekar en að elta alþjóðlega strauma.“