Jólakötturinn

Jólakötturinn 2024

Anders Vange hjá Reykjavík Glass sá um hönnun á jólakettinum 2024 en kötturinn er framleiddur úr endurunni gleri á verkstæðinu hans á Kjalarnesi. 

Rammagerðin hóf hefðina um að fela íslenskum hönnuði gerð jólakattarins árið 2020. Sá fyrsti var eftir Stúdíó Fléttu og svo var það Hanna Dís Whitehead sem hannaði hann árið 2021. Árið 2022 var það Ragna Ragnarsdóttir hönnuður sem varð fyrir valinu og  árið 2023 var það hönnuðurinnn Björn Steinar Blumenstein. Í ár er  það svo hinn danski glerlistamaður Anders Vange eins og fram kom hér að ofan. 

Jólakötturinn er vel þekktur óvættur í íslenskum þjóðsögum. Hann var hvað þekktastur fyrir að éta þau börn sem ekki fengu nýjar flíkur fyrir jólin. Þó að kötturinn sé löngu hættur þeim óskunda er hann enn sterkur hluti af íslenskri jólahefð.  

 “Ég hóf samstarf við Rammagerðina stuttu eftir að ég stofnaði Reykjavik Glass í nóvember 2022. Ég hafði heimsótt búðina á Skólavörðustígnum nokkrum sinnum og var mjög hrifinn af því sem Rammagerðin stendur fyrir. Þegar ég var búinn að gera fyrstu línuna mína fór ég til þeirra og var svo heppinn að þau vildu fara í samstarf með mér, “ segir Anders.  Um jólaköttinn 2024 segist hann hafa sótt innblástur til kattar sem hann hitti á förnum vegi. “Ég var í göngutúr með hundinn minn og við hittum kött sem var alls ekki hrifinn af hundinum. Ég tók mynd af honum með kryppu og úfinn feld og þaðan kom innblásturinn.” 

Anders hefur líka verið að vinna að jólaskrauti og fleiri glermunum fyrir Rammagerðina. “Ég hef verið að leita eftir að hanna hluti sem vinna vel með endurunnu gleri úr gluggum sem hefur styttra vinnuferli en venjulegt glerblásturs gler. Ég reyni að vinna með glerinu og ekki á móti því og þess vegna sýnir mikið af hönnun minni þennan fljótandi eiginleika glers. “

Aðeins 30 númeraðir jólakettir eru framleiddir á hverju ári sem gerir þá að einstökum safngrip.

← Older Post Newer Post →

Nýtt

RSS
Frumsýning á nýju línunni Charm By Hlín Reykdal

Frumsýning á nýju línunni Charm By Hlín Reykdal

Við höfum selt skartgripina hennar Hlínar Reykdal um árabil og erum virkilega spennt fyrir nýju línunni hennar Charm by Hlín Reykdal. Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin...

Read more
Eilífðarmolar Ragnheiðar Ingunnar

Eilífðarmolar Ragnheiðar Ingunnar

Frá upphafi hefur Rammagerðin lagt upp úr því að lyfta upp íslenskri hönnun og vinna með hönnuðum sem hafa verið að gera frábæra hluti fyrir íslenskt...

Read more