Bjarni Viðars Espressobolli
Bjarni Viðar Sigurðsson er einn af okkar færstu leirlistarmönnum. Hann starfaði áður í bankageiranum en ákvað að skipta um starfsvettvang og lærði leirlist í Danmörku, þaðan sem hann útskrifaðist árið 2000. Hann rekur nú stúdíó hér á landi og er einn af þeim listamönnum sem hafa starfað með Rammagerðinni í langan tíma. Verk Bjarna einkennast af einföldum, hreinum formum þakin fjölbreyttum og kraftmiklum glerungum, sem gerir hvert verk einstakt. Hefðbundnum reglum um glerjun leirkerfa er vikið og brotið til að skapa nýja og litríka tóna.
Verslanir okkar bjóða upp á mikið úrval af verkum Bjarna og höfum við ekki enn skráð það allt. Netverslun okkar sýnir aðeins örfá verk hans. Við mælum því með að heimsækja verslanir okkar til að skoða allt safnið hans og sjá mismunandi liti sem við bjóðum upp á.
Espressóbollarnir eru fáanlegir í tveimur stærðum. Stærðin sem er mynduð er lítil.