Jólakettir Rammagerðarinnar árið 2023 voru hannaðir af Birni Steinari Blumenstein. Björn er einstakur hannaður að því leiti að hann leggur mikið upp úr því að vinna með endurunnin efni og að hluti sem hann hafi haft hlutverk. Björn talar um að verkefnið hafi verið áskorun fyrir hann sem hannað þar sem útlit hefur verið í aukahlutverki hans ferli en tilgangur og ívinningur verkefna í forgangi.

Björn slasaði á sér fótinn í miðju hönnunarferlinu og er byrjaður í löngu bataferli. Það stoppaði hann þó ekki í að klára verkefninu og skila því af sér með glæsibrag.“Ég náði ekki að framleiða mótið fyrr en eftir að ég slasaði mig. Ég var lengi að komast að því úr hvaða efni sem ég ætlaði að framleiða. Þetta var tilraunakennt ferli þar sem ég var að gera tilraunir, plast og leir. að smíða mér einföld tól til að geta búið til svona leirpulsur úr einhverskonar kíttibyssu. Formið kemur voða mikið þaðan.“

Jólaköttur Rammagerðarinnar er árlegt samstarfsverkefni milli Rammagerðarinnar og mismunandi hönnuða á ári hverju. Jólakötturinn prýðir eina af fjórum gluggaframstillingum í verslun okkar á Skólavörðustíg 12, jólin 2023.


0 athugasemdir

Skrifa athugasemd