Ferming er stór áfangi bæði í lífi fermingabarns og fjölskyldu. Það að gefa vel valda, fallega fermingagjöf getur gert daginn enn eftirminnilegri fyrir fermingabarnið.
Í Rammagerðinni er að finna mikið úrval af fallegum vörum sem henta fyrir öll kyn. Margar fermingaathafnir fara fram í Hörpu og er því kjörið að nýta ferðina og versla gjöfina í leiðinni í athöfnina í verslun okkar í Hörpu.
Vinsælustu fermingagjafir síðustu ára
Í gegnum árin hefur Rammagerðin aukist mikið í vinsældum hjá fermingabörnum. Hér má sjá þær vörur sem hafa verið hvað vinsælastar í fermingapakkana.
Ullarteppi Rammagerðarinnar eru mjög vinsælar. Þau koma í 6 mismunandi litum svo það er auðvelt að finna teppi sem passar við stíl fermingabarnsins. Ullarteppin eru svo klassísk að þau passa bæði inn í unglingaherbergi og inn á framtíðarheimilinu síðar meir.
Vörurnar frá Feldi eru í miklu úrvali hjá Rammagerðinni. Vinsælustu vörurnar í fermingapakkana eru ennisböndin og hanskarnir. Loðvestin hefur einnig verið að aukast gífurlega mikið í vinsældum síðustu mánuði.
Einstakar gjafir fyrir fermingabarnið
Í Rammagerðinni eru einungis sjaldan íslensk hönnunarvara og eru vörur einstakar. Sem dæmi má nefna Fischersund ilmvötnin, sem henta fyrir öll kyn. Ilmirnir innihalda einungis íslensk hráefni og fer öll framleiðslan fram á Íslandi. Ef þér finnst erfitt að velja einn ílm fyrir fermingabarnið er einnig hægt að kaupa alla þrjá ílmina í minni útgáfum og leyfa fermingabarninu að prófa. Einnig eru ilmvötnin frá Andrea Maack fyrir öll kyn og einstaklega góð gjöf.
Snyrti- og tölvutöskurnar frá Kormáki & Skyldi hafa verið vinsælar síðustu ár ásamt plakötunum Petit Artprint sem inniheldur skemmtileg og jákvæð skilaboð. Mjög næst fyrir unga fólkið sem á lífið framundan.
Fær í flestan sjó vörulínuna er ein mest selda vörulína Rammagerðarinnar. Það sem hefur verið vinsælast hjá ungu kynslóðinni eru grifflurnar, kragarnir og húfurnar. Vörurnar fást í ótal mörgum litum og eru framleiddar úr angóruull í Varma í Reykjavík. Eins eru ullarvörurnar eins og peysur og vesti vinsælar gjafir, mjög vandaðar og fallegar flíkur.
Skartið frá Hlín Reykdal
Hlín Reykdal er einn færasti skartgripahönnuður Íslendinga. Hún er stöðugt að þróa vörulínur sínar og fylgir helstu tískustraumum. Skartgripirnir frá Hlín Reykdal eru afar vinsælir í fermingapakkana.
Opnunartímar í Hörpu
Það er kjörið að koma við í verslun Rammagerðarinnar í Hörpu og klára gjafakaupin þar sem þú ert á leið í fermingu í Hörpunni. Verslun Rammagerðarinnar fylgir opnunartíma Hörpu og eru sem hér segir:
Sun-Þri 10-18
Mið-Lau 10-19
Verið velkomin í Hörpu og við munum glöð aðstoða við val á fullkomnu fermingagjöfinni.